top of page

Toppstöðin – ný miðstöð við Elliðaárdal - Til leigu

  • 2 days ago
  • 1 min read

Við hjá Eignabyggð erum stolt að kynna nýtt og spennandi verkefni – Toppstöðina, nýja miðstöð útivistar og jaðaríþrótta á höfuðborgarsvæðinu.

Toppstöðin er hugsuð sem lifandi áfangastaður fyrir alla aldurshópa sem vilja stunda hreyfingu, íþróttir og heilsueflandi tómstundir í einstöku umhverfi við Elliðaárdal. Markmiðið er að skapa aðstöðu sem sameinar náttúru, hreyfingu og nútímalega innviði undir einu þaki.


Meginhugmyndin

Framtíðarsýn verkefnisins er skýr: Að sem flestir Reykvíkingar geti nýtt sér aðstöðuna og fengið innblástur til að stunda reglulega hreyfingu og íþróttir.

Í Toppstöðinni verður lögð áhersla á:

  • Fjölbreytt og áhugavert íþróttastarf

  • Jaðaríþróttir og nýsköpun í hreyfingu

  • Heilsutengda starfsemi

  • Verslun og veitingar sem styðja við heildarupplifunina

Markmiðið er að skapa kraftmikla miðju þar sem iðkendur, fjölskyldur og gestir upplifa samspil hreyfingar, samfélags og þjónustu.


Hönnun og umgjörð

Frumhönnun mannvirkisins er unnin af Nordic – Office of Architecture og endurspeglar metnað okkar til að skapa nútímalegt og aðlaðandi húsnæði sem fellur vel að umhverfi Elliðaárdalsins.


Tækifæri fyrir framsækna leigutaka

Við leitum nú að áhugasömum leigutökum sem vilja taka þátt í uppbyggingu nýrrar miðstöðvar útivistar og jaðaríþrótta. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir:

  • Íþróttafélög

  • Heilsutengda starfsemi

  • Verslun og veitingar

Við viljum vinna með öflugum samstarfsaðilum sem sjá tækifæri í því að móta starfsemi frá upphafi og verða hluti af nýjum áfangastað á höfuðborgarsvæðinu.

bottom of page