top of page

Framkvæmdir í fullum gangi við Borgahellu 6–8

  • 3 minutes ago
  • 1 min read
Framkvæmdir

Það er líf og fjör á framkvæmdasvæðinu við Borgahellu þessa dagana þar sem uppbygging á nýju atvinnuhúsnæði fyrir Tesla og N1 gengur hratt og vel.

Við Borgahella 8, þar sem N1 verður með sína starfsemi, er húsið nú að verða fokhelt. Verkið hefur gengið samkvæmt áætlun og stefnt er að afhendingu í sumar.

Á sama tíma er hafin uppsetning á stálgrind við Borgahella 6 þar sem Tesla mun starfa. Grindin er að rísa hratt og markar það stóran áfanga í verkefninu.

Þessi uppbygging er liður í áframhaldandi þróun svæðisins og styrkir innviði fyrir öfluga starfsemi á svæðinu.

Fylgist með við munum deila fleiri uppfærslum eftir því sem verkið vindur fram.


Hafnarfjörður

Stálgrindarhús

bottom of page